After Eight triffli
1 svampbotn
3-4 msk Grand Marnier
150 gr After Eight
1 dl rjómi,
150 gr rjómaostur
3 msk sterkt kaffi,
1 tsk vanilludropar
10 After Eight plötur
2 ½ dl þeyttur rjómi
After eight til skrauts.
Kljúfið kökubotninn og skerið í nokkra bita. Raðið nokkrum á botninn á skál og
dreypið hluta af líkkjörnum yfir. Brytjið after eightið og setjið í skál.Setjið
rjómann í pott og hitið,hellið yfir súkkulaðið og hrærið vel á meðan
bráðnar.Þeytið rjómaostinn og setjið kaffið og vanilludropana saman við. Bætið
súkkulaði blöndunni saman við og hrærið vel. Setjið 1/3 af blöndunni yfir
kökubotninn.
Brytjið 5 súkkulaðiplötur yfir ostakremið.Raðið fleiri kökubitum yfir og dreypið
meiri líkkjör,meira ostakrem og 5 brytjaðar súkkulaðiplötur,þá rest af
kökubotninum,ostakrem og síðasta súkkulaðið. Skreytið með rjóma og after eight.