1 fransbrauð
250-300 gr skinka
1 dós aspas
1 dós sveppir
200 gr majones
3 eggjarauður
3 eggjahvítur þeyttar
salt og pipar
rifinn ostur
Smyrjið eldfast mót, takið skorpuna af fransbrauðinu og rífið
það niður í botninn á mótinu.
Hellið aspasnum yfir (safinn líka), hellið sveppasafanum yfir
Hrærið majonesið út með eggjarauðunum, kryddið með salti og
pipar.
Saxið skinkuna og blandið saman við ásamt sveppunum.
Hellið blöndunni yfir brauðið.
Í lokin er eggjahvítunum dreift yfir, rifnum osti stráð ofan á og bakað í 30 mín
við 180-200°C.
ATH. Það má líka nota ananas í staðinn fyrir aspas og gott getur
verið að nota hvítlaukssalt.
Það má líka hræra eggjahvítunum saman við alla blönduna í lokin en passa að
hræra ekki of mikið.