Góður brauðréttur
Sætt sinnep
2 dósir sýrður rjómi
2 litlar dósir mæjónes
4 egg, harðsoðin
1 bréf skinka
2 litlar dósir ananas
1 stórt franskbrauð
Rækjur
Paprika
Smyrjið sinnepi inn í stóra skál og rífið brauðið í botninn. Blandið eggjum,
skinku og ananas saman við sýrðan rjóma og mæjónes.
Setjið salat og brauð til skiptis í skálina þar til bæði salatið og brauðið
klárast.
Setjið rækjur og smátt skorna papriku ofan á.
Kælið áður en rétturinn er borinn fram.