Fínn brauðréttur

1 dós sýrður rjómi (36%)
1 dós sýrður rjómi (18%)
1 ½ dl rjómi
1 dós sveppir (200 gr)
1 dós aspas (300 gr)
250 gr skelfiskur eða krabbakjöt (surim)
100 gr skinka
100 gr ostur (26%)
10 sneiðar samlokubrauð, hvítar
½ tsk karrý
1 tsk laukduft
1 tsk Season All
Blandið saman sýrðum rjóma og rjóma og bætið safa af sveppum og aspas út í.
Kryddið með karrý, laukdufti og Season All.
Hreinsið skelfisk/krabbakjöt, smækkið og blandið út í rjómablönduna ásamt sveppum, aspas, saxaðari skinku og rifnum osti.
Skerið brauð í teninga og blandið saman við.
Setjið blönduna í eldfast mót í ofni við 200°c í 20-30 mín.
Berið fram sem sjálfstæðan rétt eða á kaffihlaðborði.