Gulrótarmúffur (hollusta)

5 dl spelt, gjarnan fínt og gróft til helminga
1 1/2 dl þurristað kókosmjöl
2 rifnar gulrætur (u.þ.b. 100 g)
1 1/2 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk kanill
1/4 - 1/2 tsk Himalaya- eða sjávarsalt
1 1/2 dl hrísgrjónamjólk eða önnur mjólk
1 msk möluð hörfræ (má líka nota 1 egg)
3/4 dl kalpressuð kókosolía
1 1/2 dl agave síróp

Hitið ofninn í 180°C. Blandið spelti, ristuðu kókosmjöli, rifnum gulrótum, vínsteinslyftidufti, kanil og salti saman í skál.
Setjið mjólk, hörfræ (eða egg), kókosolíu og agave síróp í matvinnsluvél og hrærið í smá stund. Hellið blöndunni síðan saman við þurrefnin og blandið saman.
Setjið í smurð múffuform eða bréfform og bakið við 180°C í 20-25 mín.