Bjössabollur
26 stk.

Innihald
(Bollu - strákur / stelpa)
50 g. smjör /smjörvi eða 4 msk. olía
3 dl. mjólk / 1 msk. sykur
1 tsk. gróft salt
4 tsk. þurrger (perluger)
eða 50 gr. pressuger
200 g. hveiti
200 g. heilhveiti
egg til að pensla bollurnar
Aðferð
Bræðið smjörið og setjið út í ylvolga
mjólkina u.þ.b. 37° C, ásamt gerinu. Bætið sykri og salti saman við. Blandið
öllu heilhveitinu og u.þ.b. helmingi af hveitinu saman við og sláið deigið saman
þannið að það verði eins og þykkur grautur. Afgangurinn af hveitinu geymist til
þess að hnoða saman við deigið eftir fyrri lyftingu. Látið lyfta sér í u.þ.b. 20
mín. í skálinni.
Nú er auðvelt að hnoða og móta deigið.
Deiginu er skipt í tvo hluta og hvor hluti mótaður í langa pylsu. Hvor pylsa
skiptist í 13 hluta. 24 stykki eru notuð í búk og 2 stykki í höfuð. Þessi 24
stykki mótast í kúlur, sem raðað er með litlu millibili á smurða bökunarplötu
(eða á bökunarpappír á bökunarplötu), 2 stykki eru hnoðuð saman og búið til
höfuð. Sjá mynd. Í Staðinn fyrir hár má nota rifnar gulrótarræmur (gott er að
kreista sítrónu- eða appelsínusafa yfir þær svo að þær haldi sínum lit). Einnig
er hægt að nota pappírsræmur. Látið lyftast í 20 mín.
Penslið með hrærðu eggi.
Bökunartími ca. 20 mín. við 225 °C, í
miðjum ofni.