| |
Tómatbrauð með parmesanosti 250 ml
vatn, ylvolgt
1 1/2 tsk ger
1 tsk hunang
1/2 tsk salt
3 msk ólífuolía
um 400 g hveiti (helst brauðhveiti), eða eftir þörfum
10 sólþurrkaðir tómatar í olíu
2-3 msk nýrifinn parmesanostur
Vatn,
ger og hunang sett í skál og látið standa þar til freyðir. Þá er salti
og olíu bætt út í og síðan svo miklu hveiti sem þarf til að deigið verði vel
hnoðunarhæft en þó fremur lint. Hnoðað mjög vel og síðan mótað í kúlu, sett
í skál og látið lyfta sér í 1-1 1/2 klst, eða þangað til það hefur a.m.k.
tvöfaldast. Þá er það slegið niður og hnoðað ögn og síðan flatt dálítið út
með höndunum. Tómatarnir skornir í ræmur og dreift yfir ásamt svolitlu
hveiti. Hnoðað áfram þar til tómataræmurnar eru dreifðar um allt deigið.
Mótað í aflangt brauð, sett á pappírsklædda bökunarplötu og látið lyfta sér
í um hálftíma. Á meðan er ofninn hitaður í 215 gráður. Brauðið penslað með
vatni eða olíu, ostinum stráð yfir, sett í ofninn og bakað í 20-25 mínútur,
eða þar til það er gullinbrúnt og holt hljóð heyrist þegar barið er í
botninn með hnúunum. Látið kólna á grind áður en það er skorið.
|