Þjóðmenningarbrauð
2 kg hveiti
3 msk. þurrger
2 msk. salt
3 msk. sykur
ca. 1 l volgt vatn
Allt hnoðað saman og látið tvöfalda sig með rökum klút yfir.
Deigið slegið niður og mótað í bollur, ca. 15 bollur.
Skorið ofan í bollurnar og þar ofan í má setja t.d.
ólívur og ost, gráðaost, pepperoní o.s.frv. o.s.frv. eftir smekk.
Bollurnar látnar hefa sig aftur, settar í kaldan ofn og bakaðar
við 210°C þar til þær verða fallega brúnar. Þegar ofninn er
orðinn vel heitur er gott að skvetta einum bolla af vatni inn í hann til að fá
gufu.
