Speltbrauð

3 bollar gróft speltmjöl
2 bollar fínt speltmjöl
5 tesk. vínsteinsduft (fæst í heilsubúðum)
1 matsk. hlynsíróp
1 matsk. ólífuolía
1-2 tesk. sjávarsalt
1 egg
2 bollar sojamjólk eða vatn

1. Settu öll þurrefnin í hrærivélarskál.
2. Blandaðu vökvanum saman við og hrærðu þar til deigið er orðið nokkuð blautt en þó enn þykkt.
3. Settu deigið í smurt form. Bakaðu við 175º C í blástursofni - 190º C í venjulegum ofni - í ca. 60 mínútur.

Uppskrift: Úr eldhúsinu á Gistiheimilinu Brekkubæ - www.hellnar.is
Bökunarmeistari: Guðríður Hannesdóttir.