| |
Speldis-sódabrauð 450 g speldi (spelt)
1 1/2 tsk salt
1 tsk matarsódi
1/2 tsk lyftiduft
250 ml súrmjólk
Ofninn hitaður í 180 gráður. Speldi, salti og
lyftiefnum blandað saman í
skál og súrmjólkinni hellt yfir og hrært vel saman. Deigið hnoðað þangað til
það er slétt og meira hveiti eða súrmjólk bætt út í eftir þörfum; það á að
vera frekar lint en þó vel hnoðunarhæft með hveitistráðum höndum. Mótað í
kúlu, sett á pappírsklædda bökunarplötu, flatt dálítið út með lófanum, og
svo er djúpur kross skorinn í brauðið með mjög beittum hníf eða
rakvélarblaði. Sett í ofninn og bakað í 35-40 mínútur, eða þar til brauðið
hefur tekið góðan lit og holt hljóð heyrist þegar slegið er í botninn með
hnúunum. Látið kólna alveg áður en það er skorið.
|