Pizzusnúðar (heilsusamlegir)

Deigið:
250 g spelt, hægt að nota fínt og gróft til helminga
3 tsk vínsteinslyftiduft
1/2 tsk salt
1 tsk óreganó
1-2 msk olía, t.d. kaldpressuð kókosolía eða ólífuolía
125-150 ml heitt vatn

Setjið allt nema vatnið í hrærivél eða matvinnsluvél og blandið saman. Bætið vatninu út í smám saman þar til deigið myndar kúlu, þá er það tilbúið. Stráið spelti á borðið og fletjið deigið út, reynið að hafa það ferhyrnt. Smyrjið fyllingunni á deigið, rúllið því upp svo það verði að þykkri "pylsu" og skerið í sneiðar sem þið setjið á bökunarpappír á ofnplötu. Bakið í um 15 mín við 200°C. Þessa snúða er upplagt að frysta.

Fylling:
1 dós (200g) lífrænt tómatþykkni
2 dl salsa pronta frá LaSelva
100 g spínat, saxað smátt í matvinnsluvél (má sleppa)
2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk oreganó
1 tsk basil
1 tsk tímían
1/4 tsk kanill
50 g furuhnetur

Hrærið allt saman í skál og smyrjið á deigið. Ef þið viljið nota ost er upplagt að strá rifnum osti (t.d. parmesan, sojaosti eða geitaosti) yfir fyllinguna þegar þið hafið smurt henni á deigið.