| |
Pitsubollur 250 ml
vatn, ylvolgt
2 tsk perluger
1/2 tsk sykur
2 msk ólífuolía
1 tsk salt
450 g hveiti, eða eftir þörfum (gjarna brauðhveiti)
pestósósa, paprikumauk og/eða ólífumauk, eða bara kryddað tómatmauk
75 g hráskinka
1 ferskur mozzarellaostur (eða annar ostur)
nokkrar ólífur
nokkur basilíkublöð (má sleppa)
Gerið
leyst upp í volgu vatninu ásamt sykrinum. Þegar freyðir er olíu, salti
og meirihlutanum af hveitinu hrært saman við. Meira hveiti bætt út í smátt
og smátt, þar til deigið er hnoðunarhæft og klessist ekki mikið við
hendurnar en er þó lint. Hnoðað vel og síðan sett í hveitistráða skál og
látið lyfta sér við stofuhita uns það hefur tvöfaldast, eða í 1-1 1/2 klst.
Þá er það slegið niður, hnoðað lauslega aftur og síðan skipt í 8 jafnstóra
bita, sem eru mótaðir í bollur. Raðað á pappírsklædda plötu og lófanum þrýst
ofan á hverja bollu til að fletja hana dálítið út. 1-2 tsk af pestósósu,
paprikumauki, ólífumauki eða tómatmauki smur á hverja bollu, ekki alveg út á
brúnir, og 1-2 samanbrotnar skinkusneiðar lagðar ofan á. Osturinn skorinn í
þunnar sneiðar (langeinfaldast að nota ostaskera) og ein sneið lögð ofan á
hverja bollu og þrýst ögn niður. 2-3 ólífum bætt við ef vill og basilíkublöð
lögð ofan á. Viskastykki breitt yfir og látið lyfta sér á meðan ofninn er
hitaður í 225 gráður. Bollurnar eru svo bakaðar í miðjum ofni í um 15
mínútur, eða þangað til þær hafa tekið lit og osturinn er bráðinn og
gullinbrúnn. Borðaðar heitar eða volgar, einar sér eða með salati.
|