| Paprikufléttur 4 fléttur Þurrefnin ásamt geri sett í skál, mjólkinni, súra-rjómanum og smjörinu hnoðað saman við. Breiðið yfir deigið og látið lyfta sér á hlýjum stað í 30 mín. Grænmetið er hreinsað og skorið smátt. Panna hituð og grænmetið létt steikt í um 3 mín, það síðan kælt. Þegar deigið er búið að lyfta sér er grænmetinu hnoðað saman við og deiginu skipt í fernt. Hverjum bita er skipt í þrennt og mótaðar lengjur sem eru fléttaðar saman. Flétturnar settar á smurða bökunarplötu og látnar lyfta sér. Penslaðar með eggjarauðu og sesamfræi stráð ofan á þær. Ofninn hitaður í 200°C og bakað í miðjum ofni í 30 mín
|