Osta og skinkubrauð
6 sneiðar beikon
6 egg
3/4 bolli mjólk (1 3/4 dl)
1 1/2 bolli hveiti (225 g)
2 1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
200 g Krydd-Havarti í teningum
200 g skinka í teningum
Hitið ofninní 175°C. Brúnið beikonið við vægan hita. Þerrið það vel á
eldhúspappír. Þeytið eggin þar til þau verða létt og ljós.
Blandið mjólk, hveiti, lyftidufti og salti vel saman við eggin. Myljið beikonið
og blandið því ásamt osti og skinku saman við hræruna.
Hellið deiginu í smurt, hveitistráð formkökumót (26 x 12 cm).
Bakið í 50-60 mínútur. Takið úr mótinu og berið fram heitt með salati. Hægt er
að búa deigið til með fyrirvara, geyma í ísskáp og setja í mótið rétt áður en
það er bakað. Bakið þá í 60-65 mínútur.