| |
Ólífubrauð með lauk og kryddjurtum (Eliopsomo) 1 msk
perluger
1 tsk hunang
350 ml vatn, ylvolgt
um 650 g brauðhveiti
3 msk ólífuolía
2 tsk salt
1/2 laukur, saxaður smátt
2 tsk þurrkuð minta eða timjan (eða blanda)
16 stórar, svartar ólífur, steinlausar
Gerið
og hunangið leyst upp í volgu vatninu. Þegar freyðir er mestöllu
hveitinu hrært saman við og síðan olíu, salti, lauk, kryddjurtum og ólífunum
(heilum eða grófsöxuðum). Meira hveiti bætt við ef þarf; deigið á að vera
vel hnoðunarhæft en þó fremur lint. Hnoðað mjög vel og síðan sett í
hveitistráða skál og látið lyfta sér á hlýjum stað í um 2 klst, eða þar til
það hefur tvöfaldast. Þá er það slegið niður, mótað í stóran hleif og sett á
bökunarplötu (einnig má baka það í formi). Látið lyfta sér á hlýjum stað í
um hálftíma og á meðan er ofninn hitaður í 200 gráður. 3 grunnir skurðir
skornir ofan í brauðið eftir endilöngu með beittum hníf, það penslað með
vatni og síðan sett í ofninn og bakað í 10 mínútur. Þá er hitinn lækkaður í
180 gráður, brauðið penslað aftur með vatni eða svolítilli ólífuolíu, og
bakað í 25-35 mínútur í viðbót, eða þar til það er gullinbrúnt og holt hljóð
heyrist þegar barið er í botninn.
|