Naan-brauð
200 ml mjólk
2 msk sykur
1 poki þurrger
600 g hveiti
1 tsk salt
2 tsk lyftiduft
4 msk olía
180 gr jógúrt (hreint)
1 1/2 msk maldon salt
1 1/2 msk garam marsala
1 1/2 msk tikka marsala
25 g smjör
1-2 hvítlauksrif pressuð
búnt af fersku kóriander eða kórianderkrydd
Setjið ger og sykur saman í skál og hellið volgri mjólk yfir. Látið standa í 25
mín. Blandið síðan hveiti, salti, lyftidufti, olíu og jógúrt saman við
germjólkina. Hnoðið deigið þar til það verður mjúkt og bætið við hveiti ef það
er of blautt.
Látið deigið hefast í skál í 1 klst við stofuhita. Hitið ofninn í 275°C. Blandið
kryddinu og saltinu saman á diski. Skiptið deiginu í 10 hluta og hnoðið kúlur úr
þeim. Fletjið kúlurnar nokkuð þunnt og þrýstið þeim ofan í kryddblönduna öðrum
megin. Raðið brauðinu svo á plötu og bakið í 5-7 mínútur.
Bræðið smjörið í potti, setjið hvítlaukinn samanvið og dreypið því yfir heit
brauðin. Klippið svo kóríander yfir allt saman