Morgunbollur frá Hornbæk

750 g hveiti
1½ pk ger
4 dl vatn
1 dl olía
50 g sykur
1 tsk kardimommuduft
1 tsk salt

Vatnið hitað þar til það er volgt og olíu og sykri bætt út í. Hveitið sigtað og gerinu, kardimommunum og saltinu bætt út í og síðan hnoðað saman við vökvann. Deigið á að vera létt og laust frá borðinu. Látið hefast á hlýjum stað undir klút í 30 mínútur. Um 20-24 bollur mótaðar og þær látnar hefast á plötu í aðrar 30 mínútur. Penslið með pískuðu eggi og stráið yfir perlusykri og hökkuðum hnetum eða möndlum. Bakað við 225°C í 16-18 mínútur.