Magnað maisbrauð
Maísbrauð:
115 g smjör
2/3 bolli hvítur sykur
2 egg
1 bolli súrmjólk
½ tsk matarsódi
1 bolli maísmjöl
1 bolli hveiti
½ tsk salt
Hitið ofninn í 175°C. Smyrjið
ferningslaga bökunarform, ca 20x20 cm.
Bræðið smjörið í stórri steikarpönnu. Takið af hitanum og hrærið sykrinum saman
við. Bætið eggjunum útí og hrærið
þar til allt hefur blandast vel. Bætið matarsódanum út í súrmjólkina, og hrærið
þessu svo saman við blönduna á pönnunni. Hrærið maísmjöli, hveiti og salti saman
við þar til allt hefur blandast vel og lítið er um kekki. Hellið deiginu yfir
bökunarformið. Bakið í 30 – 40 mínútur, þar til tannstöngull sem stungið er í
miðjuna kemur hreinn út.