Lúsíubrauð

125 g smjör
5 dl mjólk
2 tsk (50 g) ger
1/2 tsk salt
1 dl sykur (má nota annað til að sæta)
1 g af saffrani
2 egg
16 dl hveiti (má nota spelt)
Rúsínur til að skreyta með
Egg til að pensla yfir brauðið

Mjólkin er sett í pott og hituð í 37°, smjör sett í og látið bráðna. Gerinu bætt í blönduna ásamt saffraninu og sætan sett út í. Eggin eru þeytt sér og bætt út í ásamt hveiti. Deigið hrært og hnoðað létt. Hreint viskustykki lagt yfir og deigið látið lyfta sér í 30 mínútur.  Hnoðað. Brauðin mótuð og sett á plötu og látin lyfta sér í aðrar 30 mínútur. Þá eru þau pensluð með eggi og skreytt með rúsínum. brauðið má móta í alls konar form og snúninga, kransa og fléttur. Brauðið verður fljótt þurrt því er ágætt að frysta það og hita upp í ofni þegar á að borða það.