Kryddaður ostavafningur

1 bréf þurrger
2-2 1/2 bolli hveiti
3/4 bolli mjólk
2 msk smjör
1 tsk salt
1 bolli rifinn Óðalsostur (200 g)
1 egg
1 hvítlauksgeiri smásaxaður
50 g smjör
1 msk steinselja söxuð
1/4 tsk tarragon steytt


1 egg sundurslegiðBlandið gerinu saman við 1 bolla af hveitinu. Hitið saman í potti mjólk 2 msk af smjöri og salt, þar til smjörið er bráðnað. Setjið þetta út í hveiti/gerblönduna ásamt 1/2 bolla af osti og 1 eggi. Hrærið 1/2 bolla af hveiti saman við. Setjið í skál, breiðið klút yfir og látið deigð hefast á hlýjum stað í 1-1 1/2 klst. Setjið nú smjörið á pönnu og látið hvítlaukinn krauma í því smástund. Hrærið tarragon og steinselju út í og kælið. Hnoðið deigið og bætið því hveiti í sem nauðsynlegt er til að gera deigið viðráðanlegt. Fletið það út í 50x24 cm ferhyrning og penslið með hvítlaukssmjörinu. Dreifið 1/2 bolla af osti yfir og rúllið deiginu upp frá langhliðinni. Kljúfið nú rúlluna með beittum hníf eftir endislöngu. Setjið lengjurnar hlið við hlið með skurðflötinn upp. Penslið enda annarrar lengjunnar og þrýstið að enda hinnar. Vefjið lengjurnar saman með skurðflötinn upp, leggið í hring á ofnplötu klædda bökunarpappír og þrýstið endunum vel saman. Leggið klút yfir vafninginn og látið hefast í 1 klst. Bakið við 175°C í 25 mínútur, penslið með sundurslegna egginu og bakið áfram í 5-10 mínútur. Kælið smástund og berið vafninginn fram volgan. Ostafafninginn má frysta. Látið hann þá þiðna við stofuhita, penslið með vatni og vefjið álþynnu utan um. Hitið í 10-15 mínútur við 160°C.