Kartöflufjallagrasabrauð
1 kg
heilhveiti
5 bollar haframjöl
6 tsk lyftiduft
1 tsk natron
½ l súrmjólk
salt
300 g rifnar kartöflur
4 hnefar fjallagrös
Aðferð:
Setjið fjallagrösin í pott ásamt rifnu kartöflunum, setjið ½ lítri af vatni út
í, salt og örlítið af púðursykri eftir smekk. Sjóðið í 15 mínútur. Látið
blönduna í matvinnsluvél í örstutta stund (má sleppa en þá verða grösin grófari
í brauðinu). Setjið heilhveiti, haframjöl, lyftiduft, natron og salt í
hrærivélarskál og hrærið á lægsta hraða. Bætið súrmjólkinni saman við en setjið
kartöflufjallagrasamaukið út í að lokum. Setjið í tvö ílöng brauðform og bakið í
tvær klukkustundir við 200 gráðu hita.