Kartöflubrauð með hvítlauksolíu
Vinsæll réttur og ódýr í innkaupum     

 

5 dl volgt vatn

1 pk. þurrger

½ dl olía

1 tsk. salt

300 g soðnar stappaðar kartöflur um 700 gr hveiti
Ger leyst upp í volgu vatni. Olíu, salti, hveiti og kartöflum bætt út í og hnoðað þar til deig er til. Deig látið hefast í um 60 mín. Því er svo skipt í 2 hluta og báðir flattir út. Nota má ýmislegt í fyllingu: pepperoni, grænar ólífur, ost og hvítlauksolíu.
Penslið þá útflatt deigið með hvítlauksolíu og raðið pepperoni, grænum ólífum og osti á. Deigi er rúllað upp og penslað með eggi.

Fræblöndu stráð yfir. Látið hefast aðeins, skellið í ofn við um 170-180 gráður og bakað þar til brauðið virðist til. Um það bil 30 mínútur.

 

HVÍTLAUKSOLÍA:

30 g brætt smjör

3 hvítlauksrif

1,5 dl Isio-olía

1,5 tsk. hvítlauksalt

Öllu blandað saman (gott að láta standa aðeins fyrir notkun).