| |
Íranskt flatbrauð (Wa-ga-fee) 1 tsk perluger
ylvolgt vatn eftir þörfum
250 g brauðhveiti
250 g heilhveiti
2 tsk salt
1 tsk matarsódi
Gerið leyst upp í svolitlu volgu vatni. Hveiti,
heilhveiti, salti og
matarsóda blandað saman í matvinnsluvél eða hrærivél, gerblöndunni hrært
saman við og síðan ylvolgu vatni smátt og smátt, þar til komið er fremur
stíft en þó slétt og meðfærilegt deig. Hnoðað mjög vel og síðan mótað í kúlu
og látið lyfta sér við stofuhita í 4-6 klst. Þá er því skipt í 8 bita og
þeir mótaðir í kúlur, sem látnar eru lyfta sér í 15-20 mínútur. Á meðan er
ofninn hitaður í 250 gráður. Hver kúla flött út þunnt í kringlótt eða
aflangt brauð og þeim raðað á 2 pappírsklæddar bökunarplötur. Sett í ofninn
og bakað í nokkrar mínútur, eða þar til brauðið er rétt farið að taka lit.
Borðað heitt eða volgt.
|