Hvítlauksbrauðið hennar Írisar

700 g hveiti
300 g Durum Semolina hveiti (fæst í hagkaupum)
1 ½ tsk salt
1 msk hrásykur
1 msk þurrkuð steinselja
11 g þurrger
1 dl olía
600 g volgt vatn, 37°

Fylling:
3 hvítlauksgeirar
2 dl rifinn ostur
50 g smjörvi
½ dl olía

Blandið öllum þurrefnunum saman. Blandið næst vökna saman við þar til deigið er orðið slétt. Hnoðið í tvær mínútur, látið hefast í skál með klút yfir í 15 mínútur. Blandið öllu hráefni fyllingarnar saman og hrærið. Mótið brauðið og setjið fyllinguna inní en passa þarf að hún leki ekki úr brauðinu. Breiðið klút eða plastpoka yfir og látið hefast í klukkutíma á volgum stað. Hitið ofninn í 200°C og setjið skál af vatni á botninn á ofninum svo það myndist gufa. Bakið í 10 mínútur, opnið ofninn og takið skálina út. Bakið brauðið áfram í 10 – 15 mínútur eða þar til það er orðið gullinbrúnt.