Hrísgrjónabrauð

150 g soðin stutt hrísgrjón
150 ml ylvolg mjólk
1 1/4 tsk. ferskt ger
40 g hunang
250 g hvítt hveiti eða spelt
1 tsk. sjávarsalt

Aðferð
1. Setjið hrísgrjónin, mjólkina, gerið og hunangið í stóra skál og blandið vel saman.
2. Blandið saman hveitinu og saltinu í aðra skál og bætið hrísgrjónablöndunni út í jafnt og þétt þar til myndast hefur klístrað deig. Látið standa í 10 mínútur.
3. Setjið smá olíu á hreint borðið og hnoðið deigið í nokkrar sekúndur í mjúka kúlu. Látið aftur standa í 10 mínútur. Endurtakið þá leikinn og látið loks standa í eina klukkustund á ylvolgum stað (ekki heitum).
4. Smyrjið 10 x 27 cm stórt form (stærðin þarf ekki að vera svo nákvæm). Mótið deigið svo það passi í formið, leggið viskustykki yfir og látið standa í aðra klukkustund, eða þar til deigið hefur tvöfaldast og snertir nánast toppinn á forminu.
5. Forhitið ofninn að 210° C, stráið hveiti yfir brauðið og setjið í miðjan ofninn.
6. Bakið í 25 mín. Lækkið þá hitann niður í 190° C og bakið í 20 mín. í viðbót, eða þar til brauðið hefur losað sig aðeins frá hliðum formsins og er orðið gullbrúnt að ofan.