Hnetubrauð Alfonsar
2 dl gróft hveiti (eða gróft spelt)
2 dl haframjöl
4 dl brauðhveiti
3 dl maltöl
½-1 dl hnetur
að eigin vali,
t.d. valhnetur
4 msk. sólblómafræ eða
önnur fræ
2 tsk. þurrger
2 tsk. salt
1 msk. olía
½ msk. púðursykur
Setjið olíu, salt og púðursykur í skál. Hitið síðan maltölið í um það bil mínútu
í örbylgjuofni og bætið svo út í skálina. Hinum innihaldsefnunum er svo bætt út
í skálina. Hnoðið í hrærivél í 5 mínútur þar til deigið er slétt og losnar frá
skálinni. Getur þurft að bæta við 1-2 msk. hveiti. Smyrjið form og sléttið
deigið í formið. Látið standa í 1-2 klst. á hlýjum stað, eða þar til deigið
hefur tvöfaldast að stærð. Bakið í 25 mín. við 200° C.