Herragarðsbrauð

4 dl mjólk
25 gr þurrger
1 dl síróp
½ tsk salt
6 dl rúgsigtilmjöl
½ dl hveitiklíð
5 dl hveiti
vatn, síróp og hveitiklíð til penslunar

Gerið er leyst upp í 37°C heitri mjólkinni. Sírópi, salti, rúgsigtilmjöli, klíði og um helmingi hveitisins bætt út í og hnoðað þar til hætt er að loða við skálina. Stráið hveiti yfir og hyljið deigið með klút, látið deigið hefast þar til að rúmmál þess hefur tvöfaldast. Hnoðið þá afganginum af hveitinu saman við og mótið tvö brauð, látið hefast í 30 mín, penslið með sírópi og stráið hveitiklíði yfir. Bakið við 200°C í 40-50 mín.