Heimabakað brauð

    800 gr hveiti eða 500 gr hveiti og 300 gr heilhveiti   
    1 msk sykur
    100 gr sólblómafræ
    100 gr sesamfræ
    4 tsk lyftiduft kúfaðar
    1 tsk matarsódi
    1 tsk salt
    5 dl súrmjólk
    2 ½ dl vatn
    1 stk egg

Hrærið saman öllu hráefni nema sesamfræjum og eggi. Notið ekki hrærivél. Reynið að vinna deigið sem minnst svo það
 verði ekki seigt. Setjið deigið í tvö smurð jólakökuform og penslið með eggi og stráið sesamfræjum yfir. Bakið við 175°C
 í 50 mín.