Heilhveitispeltbrauð
2 dl heilhveitispelt
2 dl heilhveiti
1 dl fræ, til dæmis sólblómafræ, sesamfræ, kókosmjöl.
1-2 tsk. salt
4 tsk. vínsteinsduft
300 ml AB mjólk
2 msk. olía
um það bil 3-4 dl volgt vatn
Öllum þurrefnunum blandað saman. AB mjólk, olíu og vatni bætt í. Hrært varlega
með sleif. Deigið á að vera vel blautt, sett í form sem þakið er með
smjörpappír. Látið deigið ná upp í miðjar hliðar. Ofn forhitaður í 175°C og
bakað í 30-45 mín.