|
Gulrótabrauð 300 g
gulrætur Gulræturnar skafnar eða afhýddar og rifnar fremur gróft. Gerið leyst upp í volgu vatninu ásamt 1 tsk af hunanginu. Þegar það freyðir er afganginum af hunanginu hrært saman við ásamt olíu, salti, hnetum og helmingnum af hveitinu. Rifnu gulrótunum hrært saman við og síðan meira hveiti smátt og smátt, þar til deigið er hnoðunarhæft og klessist ekki við hendurnar að ráði en er þó fremur lint. Hnoðað mjög vel. Sett í hveitistráða skál, viskastykki eða plast breitt yfir og látið lyfta sér í a.m.k. 1 klst, eða þar til það hefur tvöfaldast. Þá er það slegið niður og hnoðað lauslega og síðan skipt í tvennt og mótað í tvö aflöng brauð sem sett eru á pappírsklædda bökunarplötu og látin lyfta sér í um hálftíma. Ofninn hitaður í 210 gráður. Skáskorur skornar í brauðin með beittum hníf og þau pensluð með mjólk eða vatni (einnig mætti strá 1 msk af heslihnetuflögum á annað brauðið eða bæði) og síðan bökuð í um hálftíma, eða þar til þau hafa lyft sér vel og tekið góðan lit. Látin kólna á grind áður en þau eru skorin.
|