Graskers-maísbrauð

1 1/2 bolli heilhveiti
5 tsk lyftiduft
3/4 tsk kanill
1/4 tsk allrahanda
1/2 tsk salt
1 bolli gult maísmjöl
1/2 bolli smjör, lint
2/3 bolli púðursykur
3 egg
3 msk sítrónusafi
1 1/2 bolli soðið graskersmauk
1 bolli mjólk

Þurrefnunum blandað saman. Sjörið þeytt í sér skál, sykur settur út í og þeytt þar til létt. Síðan er eggjunum, sítrónusafa og graskersmauki bætt við og allt þeytt vel saman. Þurrefnunum og mjólk blandað í til skiptis og hrært þar til er vel blandað. Sett í tvö vel smurð brauðform. Bakað í 1 klst og 20 mínútur við 175°C. Látið kólna á grind í 5 mínútur áður en brauðin eru tekin úr formunum og kæld.