Gómsætt bananabrauð
Þetta brauð er einfalt og fljótlegt að baka en það bragðast afar vel með miklu
smjöri.
1 og ¾ bolli hveiti
1 teskeið matarsódi
½ teskeið salt
125 g smjör
1 bolli sykur
1 egg
3 þroskaðir bananar
Bananar maukaðir og öllu blandað saman.
Bakað við 170 gráður þar til brauðið er fallega brúnt.