Focaccia með skinku og fetaosti

    250 ml vatn, ylvolgt
    1 1/2 tsk ger
    1 tsk hunang
    1/2 tsk salt
    5 msk ólífuolía
    um 400 g hveiti (helst brauðhveiti), eða eftir þörfum
    75-100 g hráskinka
    75 g fetaostur, mulinn
    nokkur basilíkublöð (má sleppa)
    gróft salt

    Vatn, ger og hunang sett í skál og látið standa þar til freyðir. Þá er salti
    og 3 msk af olíu bætt út í og síðan svo miklu hveiti sem þarf til að deigið
    verði vel hnoðunarhæft en þó fremur lint. Hnoðað mjög vel og síðan mótað í
    kúlu, sett í skál og látið lyfta sér í 1-1 1/2 klst, eða þangað til það
    hefur a.m.k. tvöfaldast. Þá er það slegið niður, skipt í tvo jafnstóra hluta
    og hvor um sig flattur út í ferhyrning, um 25x25 cm á kant. Annar þeirra
    settur á pappírsklædda bökunarplötu og síðan er skinku, muldum fetaosti og
    rifnum basilíkublöðum dreift yfir, en ekki sett alveg út á brúnirnar. Hinn
    deigferningurinn lagður yfir og brúnunum þrýst saman. Látið lyfta sér í um
    hálftíma og á meðan er ofninn hitaður í 220 gráður. Djúpar holur eru svo
    gerðar í brauðið með 2-4 cm millibili, óreglulega (best er að nota
    fingurgómana, en konur með langar neglur geta notað sleifarskaft) og það
    penslað með 2 msk af ólífuolíu (sumar holurnar mega alveg vera hálffullar af
    olíu). Dálitlu grófu salti stráð yfir. Sett í ofninn og bakað í 15-18
    mínútur, eða þar til brauðið hefur lyft sér vel og tekið góðan lit. Borðað
    volgt eða látið kólna alveg.