Fjölkornabollur

    5 dl vatn, ylvolgt
    2 msk perluger
    1 msk hunang
    um 600 g hveiti
    100 g fjölkornablanda (eða þriggja korna)
    1 msk ólífuolía
    1 tsk salt
    mjólk til penslunar
    gróft salt, nýrifinn parmesanostur eða annað til að strá á bollurnar (má
    líka sleppa)

    Vatnið sett í skál ásamt geri og 1 tsk af hunangi og látið standa þar til
    freyðir. Þá er um 200 g af hveiti hrært saman við og látið standa á hlýjum
    stað í 15-20 mínútur. Fjölkornablöndu, olíu og salti hrært saman við og
    síðan hveitinu smátt og smátt, þar til deigið er rétt orðið hnoðunarhæft
    (unnt að hnoða það með höndunum án þess að það klessist að ráði). Hnoðað vel
    og síðan sett í hveitistráða skál, breitt yfir og látið lyfta sér í um 1
    klst. Þá er deigið hnoðað lauslega og síðan skipt í 12 jafnstóra bita og
    þeir mótaðir í bollur, sem raðað er á pappírsklædda bökunarplötu. Látnar
    lyfta sér í 20-25 mínútur og á meðan er ofninn hitaður í 215 gráður. Áður en
    bollurnar fara í ofninn eru þær penslaðar með mjólk og síðan er t.d. dálitlu
    grófu salti stráð á helminginn og nýrifnum parmesanosti á hinn helminginn.
    Bakaðar í 12-15 mínútur, eða þar til þær eru gullinbrúnar.