Byggbrauð

1 1/2 dl volgt vatn
1 msk. hunang
3 tsk. þurrger
1 1/2 dl sjóðandi vatn
2 dl byggmjöl
1 dl ab-mjólk
2 msk. olía
5 dl spelt (má nota hveiti í
staðinn)
1 dl soðið bygg
1 dl hörfræ
1 dl sesamfræ
1 tsk. kanill
1/2 tsk. salt

Byrjið á að leysa hunangið upp í volgu vatninu, stráið gerinu út í og látið það standa í 10 mínútur. Hellið sjóðandi vatninu útá byggmjölið og látið það líka standa í 10 mín. Þá fæst safaríkt og mjúkt brauð. Öllu blandað saman nema 2 dl af speltinu, þá er komin fremur lin soppa. Síðan þarf að hnoða deigið vel og lengi og bæta restinni af mjölinu útí smátt og smátt. Ef það er gert í höndunum þarf að hnoða í góðar 15 mínútur. Ef deigið er blautt má bæta við spelti en það á að vera svolítið klístrað. Til að fá brauð sem rís hátt er betra að setja það í brauðform, annars má alveg baka það á plötu. Brauðið er látið lyfta sér í 30 – 40 mínútur á hlýjum stað og síðan bakað við 200 gráður í ca. 45 mínútur. Ráðlegt er að fylgjast með brauðinu á loka sprettinum og til að vita hvort það sé tilbúið er gott að banka í botninn á því, ef hljómurinn er holur er brauðið bakað! Svo má leika sér með þessa uppskrift, auka magnið af bankabyggi og setja minna af fræjum í staðinn, skipta kanil út fyrir kúmen o.s.frv. Sniðugt er líka að þrefalda uppskriftina og frysta brauð til síðari tíma.