Bygg-gulrótarbrauð
Að kvöldi:
1 msk. súrdeig (fæst í Brauðhúsinu Grímsbæ
en líka hægt að búa til heima)
350 g byggmjöl
4 dl vatn (35° C)
Blanda í skál, leggja lok yfir og láta standa á hlýjum stað í 12-16 tíma
Að morgni bætist við:
350 g speltmjöl
300 g sigtað speltmjöl
150 g rifnar lífrænt ræktaðar gulrætur
100 g sólblómafræ
1 msk. salt
3 dl vatn (40–50° C)
Hnoða deigið vel, breiða yfir og láta það hefast í 40 mínútur. Skipta því í 2-3
brauð, hnoða aftur og setja á plötu. Pensla
þau með vatni og strá sólblómafræi yfir. Láta þau lyftast undir dúk í um 30
mínútur og bakast við 230°C í 40-50 mínútur.
