BRIOS-BRAUÐ
250 g hveiti
10 g ger
3 msk. mjólk (volg)
1 msk. sykur
smá salt
2 egg
175 g smjör
eggjarauður til að pensla
Sigtið hveiti í skál og gerið laut í miðjuna. Hrærið gerið úr með mjólk, sykri
og salti og látið bíða í smástund en hellið síðan í lautina ásamt eggjum og linu
smjöri. Hrærið vel og dragið hveiti smám saman inn í. Hnoðið saman í kúlu og
látið lyfta sér í um 3 klukkustundir við um 20 gráðu hita. Hnoðið deigið þá einu
sinni enn og setjið í hátt form, klæðið með pappír sem nær vel upp fyrir
brúnirnar. Látið lyfta sér í 2 klukkustundir til viðbótar. Hitið ofninn í 210
gráður. Penslið með eggjarauðu og bakið í hálftíma. Lækkið hitann í 180 gráður
og bakið áfram í 10 til 15 mínútur.