Bragðgott brauð

11 dl hörfræ
1 dl sesamfræ
1 dl sólblómakjarnar
2,5 dl hveit
2,5 speltmjöl
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
1 msk. hunang
0,5 msk. olívuolía
0.5 l AB mjólk

Allt sett í skál og hrært með sleif. Deigið er frekar blautt. Hellt í bökunarform, sléttað og yfirborðið pikkað með gafli. Sett í forhitaðan ofn 175 gráðu heitan og bakað í um eina
klukkustund. Þetta brauð má frysta. Gott að skera það í sneiðar og frysta svo, hita eftir hendinni í brauðrist og þá er það sem nýbakað.