Vínberjahlaup
750 g vínber
400 g sykur
3 msk sítrónusafi
2 msk sultuhleypir
Leggið vínberin í lögum með sykrinum í pott. Hellið sítrónusafa yfir. Komið upp hægri suðu og hrærið varlega í. Bætið sultuhleypinum út í. Látið malla í um það bil tíu mínútur, en suðutíminn fer þó eftir þroska berjanna. Síið steina og hrat frá með sigti og setjið hlaupið í hreinar krukkur. Eftir því sem berin eru þroskaðri þeim mun sætari eru þau, og þá má draga úr sykurmagni í uppskriftinni.