Reyniberjahlaup
2 lítrar reyniber sem hafa frosið
500 gr epli (Jonagold eru bragðmikil og ríka af hlaupefni)
7 og 1/2 dl vatn
9 dl sykur á móti 1 l af saft
Vatnið er sett fyrst í pottinn og látið sjóða. Berin eru sett út í með stilkunum og eplin skorin gróflega niður. Nauðsynlegt er að kjarnahúsin séu höfð með, hleypisins vegna, ásamt hýðinu. Allt látið sjóða rólega í um það bil 20 mínútur. Nota má kartöflupressu til að allt fari í smátt. Hellt á þétta síu og lögurinn látinn renna í ílát. Hann er síðan mældur og 9 dl af sykri settir í hann á móti hverjum lítra af leginum. Soðið aftur við vægan hita í 15 - 20 mínútur eða þar til dropi stífnar á kaldir skeið. Hellt í hreinar og heitar krukkur og lokið sett á. Bragðast vel með steik.