Rabarbarasulta með sítruskeim

 

500g smátt brytjaður rabarbari

500g sykur

safi úr ½ sítrónu

kjötið úr einni appelsínu

rifinn börkur af ½  appelsínu

rifinn börkur af ¼ úr sítrónu

 

Látið rabarbarann í pott ásamt sykrinum og sítrónusafanum, og sjóðið við meðalhita í 15 mín.  Hrærið í öðru hverju. Rífið börkinn á fínu rifjárni og saxið appelsínukjötið. Blandið öllu út í sultuna. Sjóðið við vægan hita 30 – 40 mín. Þessi sulta er svolítið lík marmelaði og því góð á kex og ristað brauð með osti