LUMMUR


5 dl hveiti
4 msk. sykur
4 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
6 msk. bragðlítil olía/smjörlíki
5 dl súrmjólk/mjólk (gott að blanda til
helminga)
2-3 egg

Blandið þurrefnunum saman í skál. Gott að þeyta það sem fljótandi er. Blandið svo því þurra og blauta saman þar til það hefur jafnast
vel. Hitið pönnukökupönnuna vel og bakið lummurnar, fyrst á annarri hliðinni þar til þær eru orðnar þurrar í gegn og svo í skamman
tíma á hinni hliðinni. Rjóðið örlítilli olíu á pönnuna ef lummurnar festast við. Hægt er að baka banana með eins og lýst hefur verið.


Mynd"Lummur"