Kleinuhringir

2 dl mjólk
1 þeytt egg
60 g ósaltað smjör
15 g pressuger eða
1 msk þurrger
375 g hveiti (ca 7 dl) - meira ef vill
¾ tsk salt
50 g sykur
góð matarolía

Ef notað er pressuger er það leyst upp í volgu vatni. Smákornótt þurrger er sett beint saman við hveitið. Smjörið er bráðið og mjólkinni hellt samanvið. Hveiti (ger), salt og sykur er sett í skál og búin til hvilft. Vökvinn og eggin eru nú sett í skálarmiðjuna og hveitinu smám saman hrært útí vökvann með höndunum. Deigið á að vera mjúkt og rakt og sleppa hendi. Hnoðað áfram þar til deigið verður teygjanlegt, mjúkt og gljáandi. Nú er það látið hefast í 45 mínútur.
Deigið er nú flatt út 2ja cm þykkt og stungnir út ca 7 cm hringir (t.d. með glasi). Síðan er annar og minni hringur stunginn út úr miðju hringjanna.
Kleinuhringjaefnin eru sett á bökunarpappír og látin hefast í 50° heitum ofni í 20 – 30 mínútur. Góð matarolía er hituð upp í
180 ° (t.d. í wok pönnu) og hringirnir, ekki of margir í einu steiktir 2 – 4 mínútur á hvorri hlið.
Hringirnir færðir upp og látið síga vel af þeim á pappír, t.d. af eldhúsrúllu. Í lokin má strá á þá flórsykri, smyrja á þá kakó- súkkulaði eða karamellubráð. Á þessa bráð má síðan strá skrautsykri.