Karmellur
2 msk Sýróp
2 msk Vanillusykur
2 msk Smjör
3 dl Rjómi
3 dl Sykur
Setjið allt saman í pott, látið sjóða hægt og hrærið af og til. Eftir 15 mín. suðu byrjið þið að ath hvort deigið sé nógu soðið. Setjið þá svo lítið af deiginu í bolla með köldu vatni og ef þið getið mótað samhangandi kúlu úr deiginu þá er það tilbúið. Það má líka setja kakó þá er þetta súkkulaðikarmella.