Karamellukrem

2 dl rjómi
120 gr sykur
2 matsk. Sýróp
30 gr smjör
1 tsk vanilla

Blandið rjóma, sykri og sýrópi saman í pott. Hrærið stöðugt í og sjóðið þangað til að sleifarfarið sést í kreminu. Bætið þá smjöri og vanillu út í. Ausið kreminu yfir kökuna þegar það er að verða kalt og látið storkna. Kakan geymist vel.