Hummus

250 g soðnar kjúklingabaunir
1 stk. hvítlauksgeiri
1 stk. chili, fræhreinsað
um það bil 3 msk. hvítt tahini
1 msk. sítrónusafi.
2 msk. steinselja, hökkuð
50-100 ml olía.
1 tsk. salt
1/2 tsk. malað ostakúmen
1/2 tsk. malað kóríander

Setjið í matvinnsluvél og maukið þar til áferðin er orðin mjúk. Smakkið til með sítrónu og salti.