Eplachuntey

1 kg græn epli
1 laukur, saxaður fínt
3-4 msk fersk engifer, rifin
5 hvítlauksgeirar
2 dl eplaedik
6 dl hrásykur
3 dl rúsínur
1 tsk salt
3-4 tsk karrý

Afhýðið eplin og kjarnhreinsið og skerið síðan í bita, saxið laukinn fínt og rífið engiferið. Setjið allt í pott og sjóðið í um það bil klukkutíma og setjið í hreinar krukkur.
Mjög gott chutney eða kryddsulta sem verður betri ef hún fær að bíða á krukku í einhvern tíma. Gott með steik eða indverskum mat og frábær gjöf til góðra vina.