Engiferkaramellur
Karamellur með engiferbragði eru bæði sætar og bragðmiklar og eru falleg gjöf sé
þeim pakkað inn í flott box eða fínan poka með skemmtilegu skrauti.
4 bollar rjómi
2 bollar síróp
4 bollar strásykur
12 matskeiðar smjör
½ bolli melassi
1 teskeið vanilludropar
¾ teskeið salt
1 teskeið kanill
¾ teskeið engifer
¾ teskeið múskat
¼ teskeið negull
Blandið saman rjóma, sírópi, sykri, smjöri og melassa og látið sjóða í stórum
potti við háan hita. Hærið þar til sykurinn er uppleystur. Hafið áfram á
miðlungshita í um það bil 20 mínútur. Takið af hitanum og bætið við
vanilludropum, salti og kryddi. Hellið blöndunni í ferkantað mót og látið standa
í sólarhring án þess að setja neitt yfir mótið. Skerið svo karamelluna í bita og
pakkið hverri og einni inn í fallegan pappír. Setjið nokkrar karamellur í
fallega öskju og gefið.