Chilihlaup
Nokkrar krukkur eftir stærð
2 paprikur, rauðar
10 stk chilipipar
2 1/2 dl hvítlauksedik
7 dl sykur
4 stk sultuhleypir
Þvoið og hreinsið kjarna úr chilipiparnum og paprikunni. Setjið í
matvinnsluvél og maukið saman. Setjið sykur, edik og maukað chili og paprikur í
pott og sjóðið í 15 mín. Takið af hitanum, setjið sultuhleypi útí og hrærið vel
saman. Sjóðið í 1 mínútu og hellið á hreinar krukkur og lokið þeim strax.
Gott með kjúklingi, kjöti, osti og á ristað brauð. Hressandi hlaup og skemmtileg
gjöf.