Baileys-truffla (konfekt)
125 g ósaltað smjör
300 g rjómasúkkulaði
50 ml baileys líkjör, eða eftir smekk
Rjómasúkkulaði
Súkkulaði spænir
Hafið smjör við stofuhita og hrærið það mjúkt í hrærivél. Bræðið rjómasúkkulaði
í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði. Hellið súkkulaðinu varlega saman við smjörið
og gætið þess að skafa niður í köntum hrærivélaskálarinnar til að forðast kekki.
Hellið líkjör saman við þegar súkkulaðið hefur blandast smjörinu og hrærið
áfram. Setjið kremið í sprautupoka
með sléttri tjullu og sprautið á plötu klædda bökunarpappír. Setjið inn í ísskáp
og látið stífna í 1-2 klst. Bræðið rjómasúkkulaðið í örbylgjuofni eða yfir
vatnsbaði og dýfið truflunum í til að hjúpa þær. Veltið þeim síðan upp úr
súkkulaðispæni.